Þakkir fyrir einstakan dag

1 maí keyrslan fór fram með glæsibrag í fallegu – en köldu – veðri. Um 750 hjól mættu á svæðið og stemmingin var ólýsanleg. Hávaðinn, fólkið, samheldnin… þetta gaf manni gæsahúð. Öll þessi fallegu hjól – einfaldlega geggjað! Við viljum koma á framfæri sérstökum þökkum til allra þeirra sem komu að skipulagningu og framkvæmd dagsins. Sérstakar þakkir fá Lögreglan, Reykjavíkurborg, Vegagerðin, Faxaflóahafnir, umferðastjórnunarteymið, Víkingar, B.A.C.A, 2 Guys, vöffluvagninn, Hollvinir og stjórn Snigla. Einnig þökkum við öllum þeim sem lögðu hönd á plóg – ykkar framlag skipti sköpum og gerði þennan viðburð að því sem hann varð. Dagurinn fór einstaklega vel fram.Við þökkum öllum sem mættu og tóku þátt. Þið gerðuð daginn ógleymanlegan, allir voru til fyrirmyndar og sýnduð að ekkert, ekki einu sinni lágt hitastig, getur stoppað svona kraft og gleði. Það er einmitt ykkar þátttaka sem gerir dag eins og þennan svona stóran og flottan. Takk fyrir okkur – sjáumst næst!

Þakkir fyrir einstakan dag Lesa meira »

1. maí hópkeyrsla Snigla – það er að koma að þessu!

Nú er biðin nánast á enda – 1. maí er handan við hornið og spennan farin að magnast fyrir eina skemmtilegustu hefð ársins. Við minnum á að lagt verður af stað stundvíslega kl. 12:00 frá Grandagarði. Svo er mikilvægt að mæta tímanlega og vera klár þegar lagt er í hann. Keyrslan endar svo á bílaplaninu við Mjódd þar sem við komum saman og njótum dagsins. Á endastöðinni verða 2guys og vöffluvagninn, auk þess sem klósettaðstaða verður á svæðinu. Á Granda verða Hollvinir á staðnum með límmiðasölu til styrktar Grensás – allir eru hvattir til að sýna stuðning og leggja sitt af mörkum með frjálsum framlögum. UMFERÐASTJÓRN – ÞAÐ TÓKST! Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að markmiðið náðist – við erum komin með þann mannskap sem þurfti í umferðastjórn. Við viljum senda innilegar og hjartans þakkir til allra klúbba og einstaklinga sem buðu sig fram. Framlag ykkar skiptir sköpum og gerir það að verkum að hægt er að halda þessa frábæru hefð áfram á öruggan og skipulagðan hátt. Án ykkar væri þetta einfaldlega ekki hægt. Þúsund, þúsund þakkir – við kunnum virkilega að meta þetta! Við hlökkum til að sjá ykkur öll 1. maí – njótum dagsins saman og gerum þetta að enn einni frábærri keyrslunni.

1. maí hópkeyrsla Snigla – það er að koma að þessu! Lesa meira »

1. maí hópkeyrsla Snigla

1. maí hópkeyrsla Snigla Nú styttist óðum í eina skemmtilegustu hefð ársins – 1. maí hópkeyrslu Snigla! Undirbúningur er í fullum gangi og stjórn vinnur hörðum höndum að því að púsla saman öllum þeim þáttum sem gera daginn eftirminnilegan. Það er ýmislegt sem þarf að huga að: leiðin sjálf, leyfismál, skipulag á áfangastað, matarvagn, salernisaðstaða, merkingar og auðvitað öryggi. Allt þetta leggst saman til að skapa góða upplifun og skemmtilega stemningu fyrir alla þátttakendur. Hópkeyrslan hefst á Grandagarði og verður lagt stundvíslega af stað kl. 12:00. Endanlegur áfangastaður verður kynntur síðar, en ljóst er að keyrslan verður lengri en í fyrra. UMFERÐASTJÓRN – LYKILATRIÐIÐ Eitt af því allra mikilvægasta við framkvæmd hópkeyrslunnar er öflug umferðastýring. Til að keyrslan geti farið fram á öruggan og skipulagðan hátt þurfum við að minnsta kosti 30 sjálfboðaliða til að manna gatnamót og hringtorg. Og hér er staðan einföld: Engir sjálfboðaliðar = engin hópkeyrsla. Þetta er ekki sagt til að dramatísera – þetta er raunveruleikinn. Öryggi allra sem taka þátt er í forgangi og án nægs fjölda í umferðastjórn er einfaldlega ekki hægt að halda keyrsluna. Ef þú mætir alltaf í keyrsluna – þá er þetta tækifærið til að leggja þitt af mörkum. Ef þú vilt halda þessari frábæru hefð á lífi – þá skiptir þitt framlag máli. Ekki gera ráð fyrir að einhver annar sjái um þetta. Þessi “einhver” þarf að vera við – saman. Taktu þátt – við þurfum á þér að halda Við hvetjum klúbba, samtök , félög og einstaklinga til að stíga fram og taka þátt í þessu mikilvæga verkefni. Þetta er ekki flókið – en það er algjörlega nauðsynlegt.  Sendu póst á: stjorn@sniglar.is  eða hafðu samband í gegnum Facebook-síðu Snigla Viljum við keyrslu 1. maí? Þá gerum við þetta saman.

1. maí hópkeyrsla Snigla Lesa meira »

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla, var haldinn laugardaginn 7. mars 2026 og fór hann vel fram með ágætri þátttöku félagsmanna. Á fundinum var farið yfir starfsemi félagsins á liðnu starfsári og helstu verkefni framundan. Samkvæmt dagskrá fundarins var skýrsla stjórnar kynnt og farið yfir helstu áherslur og verkefni ársins. Einnig var ársreikningur félagsins lagður fram og yfirfarinn, ásamt rekstraráætlun komandi árs. Þá var flutt áhugaverð kynning um starfsemi FEMA, sem vakti góðar umræður meðal félagsfólks. Að lokum voru tekin fyrir önnur mál. Allar tillögur og mál sem lögð voru fyrir fundinn hlutu samþykki. Á fundinum urðu breytingar á stjórn félagsins. Jokka G. Birnudóttir, varaformaður, Sigurjón Hansson, ritari, Guðlaugur Jónsson, meðstjórnandi, og Ragna Berg Gunnarsdóttir, í varastjórn, létu af störfum eftir mikilvægt framlag til félagsins á undanförnum árum. Félagið vill færa þeim innilegar þakkir fyrir þeirra störf, tíma og eldmóð í þágu félagsins og félagsfólks. Til setu í stjórn voru kjörin Pétur Gunnarsson í aðalstjórn, Logi Már Einarsson í aðalstjórn, Gunnar Gunnarsson í varastjórn og Anna Guðný Egilsdóttir í varastjórn. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins framundan. Framundan eru ýmis verkefni sem stjórn félagsins mun vinna að á næstu mánuðum. Þar á meðan stendur til að hefja vinnu við að finna nýtt húsnæði fyrir Snigilana, sem er mikilvægt verkefni fyrir starfsemi félagsins til framtíðar. Auk þess er framundan hefðbundið félagsstarf, þar á meðal undirbúningur vorfagnaðar, 1. maí keyrslan, opin hús, grill og fleira. Lóan er komin og því styttist í að við fáum að viðra fákana okkar. Farið varlega og komið heil heim. Stjórn Snigla

Aðalfundur 2026 Lesa meira »

Við leitum að öflugu fólki í stjórn

Við leitum að öflugu fólki í stjórn Nú er brýn þörf á að styrkja stjórn félagsins og við leitum að áhugasömum einstaklingum til að taka þátt í starfinu. Laus eru: 2 sæti í aðalstjórn (kjörtímabil 2 ár) 2 sæti í varastjórn (kjörtímabil 1 ár) Stjórnarseta er gefandi og skemmtilegt verkefni þar sem þú færð tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif. Við vinnum saman að því að efla starf félagsins, bæta öryggi bifhjólafólks og standa vörð um réttindi þess. Í stjórn starfar samhentur hópur með góðan starfsanda og metnað fyrir málefninu. Starfið felur í sér þátttöku í fjölbreyttum verkefnum og viðburðum – og ekki síður góðan félagsskap. Margar hendur vinna létt verk og framlag hvers og eins skiptir máli. Ef þú hefur áhuga á að leggja þitt af mörkum og taka þátt í öflugu starfi, hvetjum við þig til að gefa kost á þér. Framboð sendast á stjorn@sniglar.is Við hlökkum til að heyra frá þér. Tilkynning um breytingu í stjórn Vegna persónulegra aðstæðna hefur Guðlaugur Jónsson ákveðið að stíga til hliðar frá aðalstjórn félagsins, en hann átti eitt ár eftir af kjörtímabili sínu. Steinmar Gunnarsson tekur sæti í aðalstjórn úr varastjórn í hans stað. Fyrir hönd stjórnar.

Við leitum að öflugu fólki í stjórn Lesa meira »

Aðalfundur

Aðalfundur Snigla 7.mars 2026 Fundurinn verður haldinn í húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands að Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi Húsið opnar kl 11:30 en fundur hefst stundvíslega kl 12:00. ( biðjum ykkur að leggja bak við húsið ) Það eru allir velkomnir á fundinn en einungis greiddir Sniglar hafa kosningarrétt. Dagskrá : 1. Setning fundar 2. Kosinn fundarstjóri 3. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu 4. Gjaldkeri leggur fram ársreikning 5. Umræða um ársreikning og skýrslu stjórnar 6. Gjaldkeri leggur fram rekstraráætlun komandi árs 7. Ákvörðun félagasgjalda fyrir næsta ár 8. Lagabreytingar ef einhverjar eru – Tillaga að breytingu á grein 10: Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn skriflega eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund.  Allar þær tillögur að lagabreytingum sem berast innan tilskilinna tímamarka skal stjórn kynna orðrétt með birtingu aðalfundarboðs á heimasíðu Snigla 9. Kosning í stjórn 10. Kosning tveggja skoðunarmanna 11. Önnur mál – húnsæðismál 12. Fundarslit Stjórn Snigla er samansett af fimm manns: Það er formaður og fjórir stjórnarmenn. Formaður er kosinn til tveggja ára í senn Seta stjórnarmanna er tvö ár í og skiptist þannig að tveir fara út í einu. Þrír varamenn í stjórn skulu kosnir til eins árs í senn. Þorgerður Hoddó Guðmundsdóttir formaður , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót Jokka G Birnudóttir varaformaður , er að ljúka sinni setu en gefur ekki kost á sér áfram Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir gjaldkeri , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót Sigurjón Hansson ritari , er að ljúka sinni setu en gefur ekki kost á sér áfram Guðlaugur meðstjórnandi , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót Að sitja í stjórn Snigla er skemmtilegt og krefjandi starf, við höfum unnið náið með samgöngustofu, Vegagerðinni, borgaryfirvöldum og lögreglu í allskonar verkefnum ásamt því að vinna í allskyns herferðum Stjórnin vinnur með hagsmuni mótorhjólafólks í fyrirrúmi og erum í góðri samvinnu við FEMA Svo eru skemmtilegu verkefnin eins og skipulagning 1.maí keyrslan, vorfundurinn ljúfi, fjölskyldugrill og ekki má gleyma öllum opnu húsunum þar sem við fáum að hitta allt skemmtilega fólkið. Þar hafa ýmsir stigið á stokk, kynnt sig og sína, höfum fengið allskyns fræðsluefni, auk þess að fá beint samtal við hinar og þessar stofnanir Við gerum kröfu um að fólk sem gefur sig fram til starfa fyrir Snigla, hafi tíma, áhuga og getu til að vinna að hagsmunum bifhjólamanna. Þetta allt gerist ekki að sjálfu sér! Við óskum eftir fersku fólki í stjórn með okkur og nú má unga fólkið endilega leggja okkur lið 😎 Samfélagsmiðlar eru orðnir jafnsjálfssagðir og tíkallasímarnir voru hér áður og okkur vantar td einhvern hugmyndaríka/nn aðila í það Endilega heyrðu í okkur, komdu í framboð, sumarið er handan við hornið og nóg að gera! Samtakamáttur mótorhjólafólks á Íslandi fer núna vaxandi og við þökkum stuðninginn við starfið á liðnu ári. Það er með greiðandi félögum okkar sem hægt er að halda úti öflugri starfssemi og hagsmunagæslu. Við viljum því nota tækifærið og minna alla á að greiða greiðsluseðlana í heimabankanum, fyrir aðalfundinn, og þökkum fyrir stuðninginn um leið og við bíðum full eftirvæntingar eftir hjólasumrinu 2026. Kær kveðja stjórn Bifhjólasamataka, lýðveldisins Sniglar.

Aðalfundur Lesa meira »

Okkur vantar þig!

Halló bifhjólafólk! Nú líður að aðalfundi Snigla og okkur vantar þig með okkur. Þar sem tveir fara úr stjórn þarf fólk í fólks stað og nú er þitt tækifæri til að láta til þín taka. Öryggi bifhjólafólks er okkur öllum hugleikið og alltaf hægt að bæta um betur. Skipulagning á viðburðum, utanumhald, útsjónarsemi, skemmtilegheit og uppfinningarsemi er kostur, áhugasemi sem og frumkvæði. Það eru allskonar verkefni sem lýtur að stjórninni og getum við lofað því að þau eru flest ef ekki öll skemmtileg. Endilega skelltu þér í framboð, og komdu með Framboð sendist á netfangið stjorn@sniglar.is ásamt stuttri kynningu á ykkur.

Okkur vantar þig! Lesa meira »

Tilkynning til félagsfólks

Kröfur vegna félagsgjalda 2026 hafa nú verið sendar í heimabanka félagsfólks. Við hvetjum ykkur til að líta í heimabankann ykkar. Ef einhverjar spurningar vakna, ef þið teljið ykkur hafa fengið kröfu fyrir mistök eða viljið ganga hóp félagsfólks, er ykkur velkomið að hafa samband við gjaldkerisnigla@gmail.com Skemmtileg dagskrá að venju framundan hjá okkur Sniglum, meðal annars opin hús, Vorfagnaður, 1.maí , fjölskyldugrill og fl. Sjáumst og komum heil heim. Kv Stjórn Snigla.

Tilkynning til félagsfólks Lesa meira »

Aðgerðarhópur efnir til samstöðufundar

Bifhjólafólk vill fá svör vegna fyrirhugaðar hækkana á vörugjöldum á innflutt mótorhjól og svo vegna kílómetragjalds Því hefur aðgerðarhópur úr ýmsum áttum tekið sig saman og boða til samstöðufundar í húsnæði Fornbílaklúbbsins 13.nóvember næstkomandi, kl 19.30 að Ögurhvarfi 2. Mætum öll því þetta snertir allt bifhjólafólk

Aðgerðarhópur efnir til samstöðufundar Lesa meira »

Minnum á tillitssemi í umferðinni

Af gefnu tilefni viljum við minna á mikilvægi þess að sýna ávallt tillitssemi og virðingu í umferðinni — hvort sem við erum gangandi, á reiðhjóli, í bíl eða á mótorhjóli. Við viljum sérstaklega beina athyglinni að því að mótorhjól mega alls ekki aka á göngu- né hjólastígum. Þessi stígar eru ætlaðir gangandi og hjólandi vegfarendum, og öryggi þeirra verður að vera í fyrirrúmi. Við biðlum til allra sem aka mótorhjólum að fylgja gildandi reglum og sýna gott fordæmi.Það þarf oft ekki nema örfáa einstaklinga til að valda truflun eða skemma fyrir öðrum sem haga sér vel og af ábyrgð. Látum umferðina einkennast af virðingu, varkárni og samstöðu.Förum varlega, sýnum tillitssemi – og komum öll heil heim. https://www.visir.is/g/20252770267d/keyrdu-hratt-a-hjolreidastig-og-toku-fram-ur-reidhjolamonnum-a-haannatima?utm_term=Autofeed&utm_medium=Social&utm_source=Facebook&fbclid=IwY2xjawMlCd9leHRuA2FlbQIxMABicmlkETBpVzl1RFBIMEoxU0FrdkJwAR5wxQCmwjsMoR5ikpc_tUcCilLNsY35kHFOuTjELMWZAGfTxgPaijbJUeGdMQ_aem_ILCpEoZIadQb2PS7eQoeXw#Echobox=1756849914

Minnum á tillitssemi í umferðinni Lesa meira »

Shopping Cart
Scroll to Top